Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Dómsmálaráðherra vöruð við lögbrotunum sem hún framdi.

Enn bendir allt til þess að Sigríður Á. Andersen  dómsmálaráðherra hafi skipað fjóra dómara pólitískt af geðþótta en ekki útfrá hæfi eins og dómstólalög fyrirskipa, og ljóst er að hún braut stjórnsýslulög til þess. Við höfum áfram farið fram á rannsókn í þinginu á skipan ráðherra í Landsrétt.

Dómsmálaráðherra var ítrekað vöruð við því (líka af Katrínu Jakobsdóttur) að hún væri líklega að brjóta lög við skipun sína á dómurum í Landsrrétt, ef hún rökstyddi ekki betur
hvers vegna hún valdi frekar fjóra aðra umsækjendur umfram þá sem matsnefnd taldi hæfasta.

Nú hefur Hæstiréttur úrskurðað að hún hafi með þessu brotið lög við skipan dómara, eins og í dóminum segir að:
"[...]
til grundvallar í dómaframkvæmd að ef dómsmálaráðherra gerði tillögu til Alþingis um að vikið yrði frá áliti dómnefndar, væri óhjákvæmilegt að sú ákvörðun væri reist á frekari rannsókn ráðherrans [en] Gögn málsins bæru á hinn bóginn ekki með sér að slík rannsókn hefði farið fram af hálfu ráðherra. Samkvæmt því hefði málsmeðferð hans verið andstæð 10. gr. stjórnsýslulaga [...].


mbl.is Vill áfram láta rannsaka skipan dómara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þingmenn fengu 45% hækkun og flugvirkjar biðja um 20%

Fyrir ári síðan fengu þingmenn 45% launahækkun. Þingmenn Pírata lögðu fram frumvarp um að leiðrétta þá launahækkun í samræmi við lög eins og Davíð Oddsson gerði 1992 og Halldór Ásgrímsson 2006.

Við settum málið í forgang og fengum það því í fyrstu umræðu á þingfundi, en svo fór það í nefndina hans Óli Björn Kárasonar þar sem það dó.

Ég krafðist þess á nefndarfundi að fá gesti til að geta rætt og afgreitt málið og Óli Björn lofaði því en sveik. Nú kvartar hann yfir kröfu flugvirkja um 20% launahækkun. Já það er of brött launahækkun fyrir stöðuleika, en kannski að Óli Björn ætti að byrja á að leggja til að leiðrétta sína 45% launahækkun fyrst því hún ógnar stöðuleika, annað er hræsni. Hann má leggja fram frumvarp okkar Pírata.


mbl.is Verkfall flugvirkja hafið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Von í heilbrigðismálum - dómsmálaráðherra hættulegur stjórninni.

 
Fjallaði um vonir, áskoranir og hættur sem fylgja nýju ríkisstjórninni við umræðunum um fyrstu stefnuræðu forsætisráðherra Katrínar Jakobs í kvöld:


mbl.is Steingrímur er íhaldsmaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mun VG verja ólöglegar skipanir dómara?

SÁAKJSigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra braut lög við skipun dómara í Landsrétt samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Ef Hæstiréttur staðfestir dóminn þá eru eflaust fáir sem í alvöru treysta Sigríði fyrir því að misnota ekki vald sitt sem dómsmálaráðherra.

Svo ef Katrín Jakobsdóttir skipar Sigríði áfram dómsmálaráðherra þrátt fyrir dóm héraðsdómstóls og hæstiréttur staðfestir dóminn mun ég leggja fram vantraust á Sigríði í þinginu. Að sjálfsögðu.


Stjórnarsamstarf við Sjálfstæðisflokkinn mun þá eflaust þýða að VG mun verja ráðherra sem misnotar vald og skipar dómara pólitískt. Hvað segja kjósendur VG um það? - Deilið og taggið vin í VG.

Katrín Jakobsdóttir vissi vel í vor að Sigríður væri að brjóta lög við skipan dómara í landsrétt því hún vann málið með mér og Sigurði Inga í Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og skrifaði undir nefndarálit sem gagnrýndi skipanirnar.

Þetta sagði Katrín um dómaraskipanir Sigríðar í þinginu í vor:


Verndum fjölmiðlafólk svo það verndi lýðræðið.

Nefndarmenn í Eftirlitsnefnd AlþingisGeta fjölmiðla til að upplýsa almenning um upplýsingar sem varða almenning er grundvöllur lýðræðisins.

Þetta fjölmiðlafrelsi er bundið í mannréttindasáttmála, staðfest í úrskurðum mannréttindadómstóla og lögbundið í Stjórnarskrá Ísland.


Tilgangur Pírata og annarra sem setja borgararéttindi á oddinn er að vernda fjölmiðlafólk svo það geti verndað lýðræðið okkar. Með þingmenn í þingnefnd sem hefur eftirlit með stjórnvöldum, og þar með sýslumönnum, höfum við Píratar og Vinstri Græn virkjað eftirlitshlutverk þingsins gagnvart því sem virðist ólögleg takmörkun Sýslumanns Reykjavíkur á fjölmiðlafrelsi Stundarinnar og Reykjavik Media.

Formaður nefndarinnar hefur samþykkt kröfu Píratar og Vinstri Grænn að boða opin fund. Fundurinn verður opinn og sendur út á vef Alþingis á fimmtudagsmorgun klukkan 9:00.

Gestir fundarins verða:
Kl. 9:10 Sýslumaðurinn í Reykjavík (fulltrúar, óstaðfest)
Kl. 9:35 Eiríkur Jónsson lögfræðingur og Hallgrímur Óskarsson frá Gagnsæi.
Kl. 10:00 Sigríður Rut Júlíusdóttir hæstaréttarlögmaður og Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands.
Kl. 10:25 Fjölmiðlanefnd (fulltrúar, óstaðfest).


Þangað til munu ríkisstjórnir falla og springa.

Fólki í dag finnst rétt að geta komið meira að ákvörðunum sem hafa áhrif á líf þeirra, eða í það minnsta fengið að vita hvernig þær ákvarðanir voru teknar. Að vanrækja þær væntingar er ávísun á pólitíkan óstöðuleika.

Í allt sumar upplifðu landsmenn leyndarhyggju og tregðu valdhafa í málum sem þolendur kynferðisafbrota vildu fá upplýst og löguð. Þessi upplifun felldi ríkisstjórnina. Eftir á skýringar stjórnarliða setja ríkisstjórnina ekki aftur saman. Landsmenn þurfa aðrar leiðir til að fá ráðamenn til að hlusta og hjálpa en að hafa hátt. “Þangað til munu ríkisstjórnir falla og springa” er sannleikurinn sem Bergur Þór faðir Nínu bendir okkur á.

Ef við byrjum ekki að breyta stjórnkerfinu hægt og örugglega í samræmi við væntingar landsmanna þá verður sífellt líklegara að poppúlistar kollvarpi kerfinu.


mbl.is Tekist á um stjórnarskrármálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aum vörn dómsmálaráðherra og ósönn.

Ósk um heimild2Lögfræðingur lögmannsstofunnar LEX sem ver gerðir dómsmálaráðherra við skipan dómara í Landsrétt leggur fram greinargerð um að máli umsækjanda sem ráðherra braut eflaust á verði vísað frá.

ÓSANNINDI 1:
Lögfræðingur ríkisins segir að vísa eigi málinu frá
því dómsmálaráðherra hafi í raun ekki tekið neina ákvörðun í málinu, aðeins gert tillögur til Alþingis.

Þetta veit dómsmálaráðherra að er ósatt enda skirfar Sigríður Á. Andersen bréf til forseta Alþingis það sem hún segir: "fengnu samþykki Alþingis [...] hyggst ég [...] leggja til við forseta íslands aðeftirfarandi einstaklingar verði skipaðir dómarar við Landsrétt:"

Lögin um skipan dómara í Landsrétt sem Sigríður Á. Andersen lagði sjálf fram fyrr á árinu eru líka skýr:
"Óheimilt er ráðherra að skipa í dómaraembætti mann sem dómnefnd hefur ekki talið hæfastan meðal umsækjenda [...] Frá þessu má þó víkja ef Alþingi samþykkir tillögu ráðherra um heimild til að skipa í embættið annan nafngreindan umsækjanda [...]"


ÓSANNINDI 2.
Þá segir lögfræðingur ríkisins
að endanlegt skipunarvald sé í höndum forseti Íslands.

Já það segir í lögum um dómstóla að "forseti Íslands skipar ótímabundið samkvæmt tillögu ráðherra" en Hæstiréttur hefur staðfest í dómi yfir Árna M. Mathiesen þávernadi dómsmálaráðherra sem skipaði son Davíðs Oddssonar gegn áliti dómnefndar, að ráðherra hafi skipunarvaldið: "Eins og áður hefur verið rakið fór aðaláfrýjandinn Árni ekki eftir þeim reglum, sem honum bar að fylgja við ákvörðun um skipun í embætti héraðsdómara[...]."

Birgir Ármannsson samflokksmaður dómsmálaráðherra og framsögumaður stjórnarmeirihlutans á Alþingi um ósk ráðherra fyrir heimild um að víkja frá áliti dómnefndar orðaði það svona í nefndaráliti:
"Með þeirri tilhögun að fela ráðherra að útnefna dómara er tryggt að veitingarvaldið liggur hjá ráðherra sem ber ábyrgð á gerðum sínum gagnvart þinginu."

Við skipan dómara hefur dómsmálaráðherra veitingarvaldið, en Alþingi og Forseti Íslands hafa neitundarvald. Þessi vörn dómsmálaráðherra er aum og ósönn, og hún veit það.

mbl.is Máli á hendur ráðherra verði vísað frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kynferðisbrot Kaþólskra presta. Fyrirspurn til dómsmálaráðherra.

"Vatikanið fyrirskipaði Kaþólskum biskupum um heim allan að hylma yfir kynferðisafbrotum eða eiga á hættu að vera vísað úr Kirkjunni."

Þetta kemur fram í frétt í The Guardian þegar skjali með fyrirskipuninni var leikið til fjölmiðla árið 2003. Skjalið er í dag opinbert á vefsíðu Vatikansins.

Sendi fyrirspurnina að neðan á dómsmálaráðherra í dag. Hún þarf ekki að svara fyrr en 15 virka daga eftir að þing kemur saman í haust, en hún getur svarað þessum spurningum óformlega fyrr, ef hún vill.

Vatican solicitation of children

_____________________________________________________________________________

Fyrirspurn til dómsmálaráðherra um viðurlög við því að hylma yfir kynferðisafbrotum. (Kynferðisafbrot Kaþólskra presta gegn börnum)

1. Hvaða lög eða reglur eru brotin af biskupi ef hann fylgir fyrirmælum Vatikansins varðandi kynferðisafbrot presta kirkjunnar m.a. gagnvart börnum, sem vísað er í greinargerðinni að neðan, og hvaða lög hefur Kaþólska kirkjan brotið fyrir að gefa slík fyrirmæli og hóta brottvísun úr starfi sé þeim ekki fylgt?

2. Eru upplýsingarnar sem vísað er í greinargerðinni nægar fyrir lögreglu eða saksóknara til að rannsaka málið frekar og ákæra? Ef ekki, hvað hyggst ráðherra gera til að sterkur grunur um skipulagða yfirhylmingu kynferðisafbrota á börnum, sem upplýsingar í greinargerð þessarar fyrirspurnar gefa, sé rannsökuð?

3. Er það brot á lögum eða reglum fyrir einstaklinga að hylma yfir kynferðisafbrot? Eru undanþágur, frá þeim ákvæðum, og ef svo hver?

4. Eru það brot á lögum eða reglum fyrir trúfélög, félagasamtök, fyrirtæki eða stofnanir að fyrirskipa félags- eða starfsmönnum að hylma yfir kynferðisafbrot? Ef ekki, hvað ef þeim fyrirskipunum fylgir hótun um mögulega brottvísun úr starfi? Ef ekki, hvað hyggst ráðherrra gera til að koma í veg fyrir slík fyrirmæli og hótanir?

5. Hver eru viðurlögin við þeim brotum á lögum og reglum sem spurt er um að ofan og hvað finnst ráðherra að réttmæt viðurlög ættu að vera?

Skriflegt svar óskast.


Greinargerð.

Fréttar dagblaðsins The Guardian 2003 uppljóstraði að Vatikanið fyrirskipaði biskupum Kaþólsku kirkjunnar um heim allan að hylma yfir kynferðisafbrotum eða eiga á hættu að vera vísað úr Kirkjunni. Leiðarvísir Vatikansins til biskupanna sem fylgir frétt The Guardian er opinber, aðgengilegur og viðurkenndur í dag á vefsíðu Vatikansins á slóðinni: http://www.vatican.va/resources/resources_crimen-sollicitationis-1962_en.html


Jón Þór Ólafsson
Þingmaður Pírata.


mbl.is Fjármálastjóri Páfagarðs ákærður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næstu skref í landsréttar málinu.

Skref 1.
Forseti Íslands neitar að skrifa undir og vísar málinu aftur til Alþingis.

Alþingi kaus um dómara í Landsrétt í einum pakka en ekki um hvern fyrir sig eins og lög fyrirskipa. (Lög um dómstóla 50/2016:Ákvæði til bráðabirgða.IV.)

Forseti Íslands verður að vera viss um þetta áður en hann skrifar undir. Forseti Íslands er síðasti öryggisventillinn í þessu máli. Hann getur neitað að skrifa undir og þá þarf þingið að vinna málið aftur.

Er búinn að hringja í GuðniTh Jóhannesson og var sagt að hann hringi síðar í dag.

Skref 2.
Sem ég fer yfir í ræðunni að neðan verður farið í óháð því hvort forseti Íslands taki fyrsta skrefið. Við rannsökum málið opinberlega fyrst og höfum fullvissu um að dómsmálaráðherra hafi brotið lög við skipan dómara þá er líklegara að allir þingmenn minnihlutans kjósi með vantraustinu og mögulega einhver meirihluta þingmaður. Þá og aðeins þá nær vantraustið í gegn.


Fjármálaráðherra segir upplýsingar um fjármálaáætlun skemma fyrir

Það er ómögulegt að sjá í hvað ríkisstjórnin áætlar að nota nánast allar fjárheimildir ríkisins næstu fimm árin í fjármálaáætlun sem fjármálaráðherra lagði fyrir Alþingi.

Þessar tölur liggja fyrir í ráðuneytum og skrifstofu Alþingis, en fjármálaráðherra segir aðgengi þingmanna að þeim spilla fyrir.

Án þessara upplýsinga er ómögulegt að taka upplýsta ákvörðun um hvort fjármálaáætlun sé farsæl fyrir landsmenn og vel verði farið með skattfé.

Fjármálaáætlun rammar inn hvað sé hægt að setja í heilbrigðismál og húsnæðismál á fjárlögum í haust, og í alla hina málaflokkana. Þessar upplýsingar þurfa því að liggja fyrir áður en Alþingi afgreiðir málið.

Við höfum sent formlega fyrirspurn um þessar upplýsingar á alla ráðherra og forseta Alþingis sem hafa 15 virka daga til að gefa opinbert svar.

Fyrirspurnin til fjármálaráðherra:

 Svar fjármálaráðherra:



Umræðan í heild.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband