Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Hjúkrunarfræðingar samþykktu að fara í verkfall 2015, og ríkisstjórn Sigmunar Davís og Bjarna Ben setti lög sem bannna verkfallið.
Landlæknir varaði við því að lög á verkfallið væri skammtímalausn. - Eftir 5 ár án þess að fá samning sem þau geta samþykkt frá fjármálaráðherra sjá hjúkrunarfræðingar sig tilneydd til að fara í verkfall, og það eftir að hafa verið í framlínunni í heimsfaraldri fyrir okkur öll.
Hjúkrunarfræðingar vöruðu við því að margir þeirra myndu hætta ef lög á verkfallið væri samþykkt. - yfir 200 hjúkrunarfræðingar sögðu upp.
Hér er það sem Katrín Jakobsdóttir sagði þá í þingræðu þegar lögin á verkfallið voru rædd á Alþingi.
Það er kominn tími til að Katrín Jakobsdóttir lýsi því yfir að hennar ríkisstjórn muni ekki setja lög á yfirlýst verkfall hjúkrunarfræðinga 22. júní, og þvinga þannig Bjarna Benediktsson til að semja við þá áður en til verkfallsins kemur.
Hún getur allavega gert það.
Segja stöðuna ríkisstjórninni til skammar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Lög á verkföll eða Velferðarsamningar við lægst launaða?
30.4.2020 | 13:41
Landslög eru skýr að það sem er barni fyrir bestu skal ávallt hafa forgang. Það er börnum fyrir bestu að afstýra mögulegu verkfalli með góðum barnvænum samningum við foreldra fátækustu barna landsins.
Reykjavíkurborg hefur sýnt fordæmi með Velferðarsamningunum við Eflingu um mikla hækkun lægstu launa og styttingu vinnuviku. Barnvænir samningar.
Sveitafélögin sem ekki hafa samið við Eflingu geta fylgt fordæmi Velferðarsamninga Reykjavíkur og sett börnin líka í forgang.
Hótanir um lög á verkföll foreldra fátækustu barna landsins eins og formaður Sambands Íslenskra Sveitafélaga var með í gær verður mætt af hörku.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.5.2020 kl. 17:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
COVID pakki ferðamálaráðherra brýtur eignarrétt og stjórnarskrá.
29.4.2020 | 16:50
Ráðherra ferðamála hefur lagt fram frumvarp um Pakkaferðir, sem leggur til að svipta neytendur lögbundnum réttindum, afturvirkt. - Það er bara viðurkennt í frumvarpinu sjálfu (3.2. í greinargerð).
Frumvarp sem leggur til að brjóta stjórnarskránna. - Já það kom skýrt fram hjá tveimur stjórnarskrár sérfræðingum sem við óskuðum eftir umsögn frá.
Frumvarp sem leggur til að taka af fólki eignarréttindi, án bóta. - Ótrúlegt en þetta kom skýrt fram hjá eignarréttar sérfræðingi fyrir þingnefndinni og báðum stjórnarskrár sérfræðingunum. Neytendasamtökin segja að fólk hafi þegar ákveðið að fara í skaðabótamál við ríkið.
Ég mun áfram standa vörð um eignarréttinn við vinnslu málsins. Það væri gott að Sjálfstæðismenn minni ferðamálaráðherra og þingmenn flokksins á að brot á eignarrétti stjórnarskrárinnar verður ekki liðið.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hjúkrunarfólk fer eftir faraldurinn, ef ekki er samið við þau.
1.4.2020 | 21:46
Við getum treyst hjúkrunarfólki til að standa með okkur í gegnum faraldurinn þó starfsaðstæður eru svo slæmar að margir menntaðir hjúkrunarfræðingar starfa ekki sem slíkir og ríkið hefur ekki samið við þá í 5 ár frá því að stjórnvöld fengu samþykkt lög á verkföll hjúkrunarfólks 2015. Þá var bent á að þetta myndi valda meiri skorti hjúkrunarfólks og 200 sögðu upp störfum í kjölfarið.
Hjúkrunarfólk munu áfram setja sig í hættu til að hjúkra okkur og þau munu smitast af Covid 19 og þegar faraldurinn er búin hefur formaður Félags Íslenskra Hjúkrunarfræðinga bent á hættuna að sum þeirra munu segja upp ef stjórnvöld sýna ekki sóma og semja við þau núna.
Hjúkrunarfólk á betra skilið - semjið við þau strax.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.4.2020 kl. 08:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Hjúkrunarfræðingar eiga betra skilið - semjið við þá.
20.3.2020 | 17:37
Á tíma sem heilbrigðisstarfsfólkið okkar er lang mikilvægasta starfsfólk landsins segir Félag Íslenskra Hjúkrunarfræðinga okkur frá enn einum árangurslausum samingafundi við samninganefnd Bjarna Ben.
Ríkisstjórn Bjarna Ben og Sigmundar Davíðs gerði samninga við lækna sem kostaði 4 milljarða á ári, en settu lögbann á verkfall hjúkrunarfræðinga sem hefði kostað það sama fyrir tvöfallt fleira starfsfólk.
Það er neyðarástand og Kóróna faraldurinn mun kosta okkur yfir 100 milljarða samkvæmt Bjarna Ben fjármálaráðherra, en hann veit ekki hvað það kostar að klára samninga við hjúkrunarstarfsfólkið sem dag eftur dag fórnar sér fyrir okkur í framlínuni við hjúkra okkar veikasta fólki og minnka mannlegan og fjárhagslegan harmleik faraldursins.
Hjúkrunarfræðingar eiga betra skilið - semjið við þá strax.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Við neyðarástand er nauðsynlegt að verja lýðræðið.
13.3.2020 | 13:13
Það er auðvelt að gera mistök þegar taka þarf hraðar ákvarðanir.
Samt er ríkisstjórnin almennt að bregðast rétt við neyðarástandinu vegna Kóróna veirunnar, og á hrós skilið.
Frumvarp Samgöngunefndar Alþingis er undantekningin. Það er hættuleg lýðræðinu og verður að lagfæra áður en Píratar geta samþykkt að hleypa því í gengum þingið.
Tilgangurinn er góður, að heimila sveitastjórnum að halda m.a. fjarfundi vegna heimsfaraldurs.
Tillagan er samt svo víðtæk að ráðherra fái:
- ótímabundið vald til að heimila sveitastjórnum að við víkja frá
- ótilgreindum lagaákvæðum sveitastjórnarlaga við
- óskilgreint neyðarástand.
Við neyðarástand er nauðsynlegt að verja lýðræðið.
Hamfara hlýnun eða hnattrænt samsæri?
29.1.2020 | 21:00
Stjórnmál og samfélag | Breytt 14.2.2020 kl. 15:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Fyrirséð að lög á verkfall hjúkrunnarfræðinga valdi skorti.
16.9.2019 | 22:33
Langflestir landsmenn vilja þjóðarsátt um hærri laun og aðbúnað heilbrigðisstarfsfólk, og hafa viljað það um árabil samkvæmt könnunum Gallups.
Það var fyrirséð að lág laun og langar vaktir væru að ganga fram af hjúkrunarfræðingum. Svo þegar séttin fór í verkfall 2105 var fyrirséð að lögbann á verkfallið myndi valda flótta úr stéttinni. Yfir 200 hjúrkunarfræðingar sögðu upp í kjölfarið.
Þó að Landlæknir varaði ýtrekað við því þá samþykkti ríkisstjórn Sigmundar Davís og Bjarna Ben samt lög sem bannaði verkfall hjúkrunarfræðinga.
Svo viku síðar kausu stjórnarliðar gegn því að leifa þingmönnum að spyrja heilbrigðisráðherra út í hættuástandið sem skapaðist eftir að 200 heilbrigðisstarfsmenn sögðu upp í kjölfar lögbanns á verkföll þeirra.
Það er kominn tími til að leiðrétta stöðu hjúkrunnarfræðinga.
Skortur á hjúkrunarfræðingum stóra vandamálið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 5.6.2020 kl. 22:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Réttindi barna hafin yfir vafa. - Annað er ekki í boði.
4.7.2019 | 14:20
"Það sem barni er fyrir bestu skal ávallt hafa forgang þegar félagsmálastofnanir á vegum hins opinbera eða einkaaðila, dómstólar, stjórnvöld eða löggjafarstofnanir gera ráðstafanir sem varða börn."
Í þeim tilgangi hef ég í þingstarfinu meðal annars:
- við mennta- og menningamálaráðherra
Fara þurfi yfir framkvæmd útlendingalaga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Dómsmálaráðherra klessukeyrði Landsrétt fyrir vini sína.
12.3.2019 | 11:42
Ráðherra dómsmála var ítrekað vöruð við að ef hún virti ekki lög um skipan dómara þá væru þeir ekki skipaðir samkvæmt lögum.
En stjórnarskrá íslenska lýðveldisins er skýr í 59. grein: "Skipun dómsvaldsins verður eigi ákveðin nema með lögum."
Mannréttindadómsstóll Evrópu hefur í dag staðfest að þetta. Og áður hafði Hæstiréttur Íslands dæmt að hún hafi brotið lög við skipun á fjórum dómurum, en tveir eru persónulega tengdir henni.
Ráðherra dómsmála braut lög og stjórnarskrá við skipan dómara og ætti að segja af sér.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)