Peningar prentaðir úr engu valda verðbólgu og verða verðlausir.
1.10.2008 | 12:23
Pappapeningar sem prentaðir eru úr engu hafa alltaf í sögunni verið ofprentaðir og hrunið í virði. Krónan hefur hrunið á síðasta ári og verð á Gull sem ekki hefur hrunið er 100% hærra en á sama tíma fyrir ári. Sjá grein
Austurríska hagfræðin hafði spáð þessu og því sem koma skal. Hér er hljóðfællinn.
![]() |
Gengisvísitalan yfir 200 stig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Húsnæðisbólan gabbaði líka ríkið til að eyða um efni fram.
1.10.2008 | 08:48
Húsnæðisbólan var flutt inn með ódýru fjármagni og ríkið fékk meira fé í sinn sjóð. Fjármagn í heiminum var ódýrt því seðlabanki Bandaríkjanna hafði prentað það úr engu sem óhjákvæmilega blés upp bólu sem gat ekki annað en sprungið með kreppu í kjölfarið.
Við óhjákvæmilegt hrun eftir húsnæðisbóluna halda menn að sé höndum í atvinnulífinu og ríkið sem hélt það myndi hafa 40 milljarða í höndunum heldur á í staðinn á 60 milljarð króna halla.
Austurríska hagfræðin hafði spáð þessu og því sem koma skal. Hér er hljóðfællinn.
![]() |
Reiknað með halla á fjárlögum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Krónan hrinur 100% miðað við Gull og Olíu á rúmu ári.
30.9.2008 | 17:21
Þarsíðasta vor sá ég þetta hrun krónunnar á sjóndeildarhringnum eftir að hafa lesið Austurríska hagfræði og hugðist kaupa mér gullmynt sem myndi ekki hrynja í verðbólgunni.
En viti menn lögleg gullmynt (þ.e. sem löglegt er að borga með skuldir og skatta) frá myntslætti Bandaríkjanna, og annarra ríkja, var virðisauka-skattskyld vegna tilskipunar frá Evrópusambandinu. Það sem þetta þýðir í raun er að við megum ekki eiga gull sem gjaldmiðil.
Ef við viljum vernda virði verðmæta okkar í eina gjaldmiðlinum sem til lengri tíma tapar ekki verðgildi sínu þá 'skattleggur' ríkið okkur eins og við værum að bræða það og búa til skartgripi til að skapa okkur 'virðisauka'.
Til að tapa ekki 24,25% við að borga virðisaukaskatt af lögmyntinni hætti ég við allt saman. En það hefði ég ekki átt að gera. Því pappa krónurnar mínar hafa hrunið á sama tíma og gull hefur hækkað. Verðmæti gulls miðað við pappakrónu er yfir 100% hærra en þarsíðasta vor.
Raunveruleg verðmæti eins og Gull og Olía haldast í hendur meðan ofprentaðir pappapeningar hrynja óhjákvæmilega.
Austurríska hagfræðin hafði spáð þessu og hvað verður um krónuna. Hér er hljóðfællinn.
![]() |
Krónan veiktist um 5,3% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.10.2008 kl. 09:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)