Frumvarp um ráðstöfun fiskveiðiauðlindar til lengri tíma en eins árs.
18.6.2015 | 16:28
Makríll er ný fiskveiðiauðlind í fiskveiðilögsögu Íslands. Henni hefur ekki verið ráðstafað með lögum. Makríl lagafrumvarpi Sjávarútvegsráðherra hefur verið harðlega mótmælt og 51.000 landsmenn hafa skorað á forseta Íslands að:
Stjórnarliðar eru byrjaðir að ræða breytingartillögu við makrílfrumvarpið sem þeir vilja fá í gegn núna á næstu dögum um að makríl skuli ráðstafað með lögum eins og öðrum fiskveiðiauðlindum með úthlutun aflahlutdeildar í heildarkvóta sem samkvæmt sérfræðingum getur tekið 6 - 30 ár fyrir þjóðina að afturkalla til sín.
Stjórnarliðar vilja að með lögum sem Alþingi samþykkir skuli fiskveiðiauðlind (makríl) ráðstafað með því að úthluta aflahlutdeild til lengri tíma en eins árs, og það áður en ákvæði um þjóðareign á auðlindum hefur verið sett í stjórnarskrá og þjóðinni hefur verið tryggt fullt gjald fyrir afnot þeirra.
Lykilatriði er þetta:
Ef Makríll er settur inn í núverandi kvótakerfi mun taka 6 - 30 ár að ná honum aftur til þjóðarinnar. Það er ráðstöfun með lögum til lengri tíma en eins árs.
Hvetjum fleiri til að skrifa undir.
![]() |
Makríll á borði atvinnuveganefndar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Fyrsta flokks heilbrigðiskerfi er ekki sett í forgang
13.6.2015 | 11:41
Fyrsta flokks heilbrigðiskerfi er í forgangi hjá 90% lands manna. Stjórnvöld hafa hins vegar sýnt það aftur og aftur að þau forgangsraða öðru fyrst. Lægri veiðigjöld fyrir sjávarútvegsfyrirtækin hefur meiri forgang. Það hafði afnám auðlegðarskattsins líka. Lækkun skatta á álfyrirtækin var forgangsverkfni fjármálaráðherra 1. maí og núna vill hann lækka skatta í stað þess að forgangsraða því svigrúmi sem lægra vaxtabyrði ríkissjóðs skapar til að halda í fyrsta flokks heilbrigðiskerfi. Það er kýr skýrt að fyrsta flokks heilbrigðiskerfi er ekki í forgangi hjá þessari ríkisstjórn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 16.9.2019 kl. 21:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Lög á verkfall setur fyrstaflokks heilbrigðiskerfi í hættu
11.6.2015 | 22:37
Lög á verkföll heilbrigðisstarfsmanna er ekki leiðin til að halda í fyrstaflokks heilbrigðiskerfi. Það setur fyrstaflokks heilbrigðiskerfi í hættu.
Ef þú stjórnar landinu þá setur þú ekki lög á verkfall heilbrigðisstarfsmanna sem geta fengið allt að tvöfalt betri laun fyrir minni vinnu og betri aðstöðu til að hjúkra fólki í nágrannaríkjunum.
Ef þú stjórnar skattfé landsmanna þá forgangsraðar þú því í fyrstaflokks heilbrigðiskerfi eins og 90% landsmanna vilja óháð flokki, kjördæmi, aldri, menntun eða efnahag. Það þýðir að hækka þurfi laun heilbrigðisstarfsmanna nóg til að halda í þá og fyrsta flokks heilbrigðiskerfið.
Í síðustu fjárlögum vantaði 3 milljarða í heilbrigðiskerfið samkvæmt forsvarsmönnum allra heilbrigðisstofnana landsins. Þessir fjármunir voru til, enda fjárlögin hallalaus upp á 3,4 milljarða.
Ef ríkisstjórnin leggur fram í þinginu frumvarp um lög á verkfall heilbrigðisstarfsmanna þá er kominn tími til að setja þessum stjórnvöldum stólinn fyrir dyrnar og læsa þau inni í herbergi þar til þau fara að hlusta á forgangsröðun landsmanna og finna lausnir í samræmi við þann vilja.
![]() |
Lög verði sett á verkföllin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)