Bush sagði Davíð gera Ísland samábyrgt í Írakstríðinu
1.6.2016 | 18:03
Íslendingar eru herlaust og friðelskandi fólk sem Davíð Oddsson setti á lista bandalags hinn viljugu þjóða í árásarstríði á Írak.
Kvöldið fyrir innrás bandamanna í Írak ávarpaði Bush þjóð sína. Þar lýsir hann að loftárásir væru hafnar og að "Hver einasta þjóð í þessu bandalagi hefur valið að axla ábygðina og deila heiðrinum við að standa vörð um sameiginlegar varnir okkar."
Noregur, Frakkland, Þýskaland og flest ríki í vestur Evrópu skrifuðu sig ekki á listann. Costa Rica lét fjarlægja sig af listanum eftir að stjórnlagadómstóll úrskurðaði að vera landsins á listanum bryti í bága við meginreglur landsins um friðsemi. Þátttaka í stríðinu fylgdi ekki því að vera NATO meðlimur og Sameinuðu Þjóðirnar studdu stríðið ekki.
Ísland þurfti ekki að vera samábyrgt í þessu stríði. Davíð Oddsson ákvað að setja okkur á listann, sem var birtur 18. mars 2003, og það áður en málið var rætt á ráðherrafundi og í utanríkismálanefnd Alþingis 21. mars 2003 eins og lög og stjórnarskrá kveða á um.
17 grein Stjórnarskrár Íslands segir: "Ráðherrafundi skal halda um nýmæli í lögum og um mikilvæg stjórnarmálefni." Svo annað hvort er stjórnarskráin það gölluð að tveir ráðherrar geta gert Ísland samábyrgt í stríði með því að segja þá ákvörðun ekki vera "mikilvæg stjórnarmálefni" eða að Davíð braut stjórnarskránna.
Íslendingar eru stoltir af því að vera friðsælt og friðelskandi fólk. Síðar í mánuðinum sjáum við hvort að landsmenn vilja sjá sem sameiningartákn þjóðarinnar og andlit Íslands á alþjóðavettvangi þann mann sem gerði Ísland samábyrgt í stríði sem kostaði hundruð þúsunda lífið.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Alvarleiki Wintris eru hagsmunir SDG við haftalosun
12.5.2016 | 13:55
Sigmundur Davíð hefur haldið því fram að Wintris félag konu hans hafi alltaf greitt skatta. Það má vera. Það mál snýst um einhverjar milljónir. Stóramálið er hins vegar að kona Sigmundar hafði sem eigandi Wintris og því kröfuhafi í föllnu bönkunum fjárhagsmuni að gæta í haftalosunarferli eiginmanns síns. Það mál varðar hundruð milljarða.
Deilt er um hvaða hagsmuni Sigmundur lét víkja við val á leiðum til haftalosunar, hagsmuni landsmana eða fjárhagsmuni konunnar hans. Sjálfur segist hann hafa fórnað hagsmunum konu sinnar. Ekki er þó deilt um að á síðustu stundu í haftalosunarferli ríkisstjórnar Sigmundar þá var skipt um stefnu. Í stað þess að leggja útgönguskatt á alla kröfuhafa þá var kröfuhöfum boðið að greiða stöðugleikaframlag í stað stöðugleikaskatts. Framlag kröfuhafanna varð 384 milljarðar í stað stöðuleikaskatts upp á 620 milljarða, samkvæmt Fjármálaráðuneytinu og Seðlabanka Íslands.
Kona Sigmundar hefur sagt opinberlega að hún sé kröfuhafi og makar hafa alltaf fjárhagslega hagsmuni af fjárhag maka síns þó að um séreign sé að ræða. Það eru alþjóðlega viðurkenndir góðir stjórnhættir að fólk sem velji að fara með almannavald forðist svona hagsmunaárekstra, en sé það ómögulegt að upplýsa þá um þá. Hjónin gátu ekki bæði haldið í sitt, Sigmundur í drauminn um sæti í ríkisstjórn og konan hans í kröfur Wintris, án þess að búa til hagsmunaárekstra sem alþjóðasamfélagið hefur sameinast um að skuli réttilega forðast. Sigmundur ætlaði skiljanlega ekki að sleppa stjórnmálaferlinum, en félög eins og Wintris eða kröfur þeirra er hægt að selja. En þau ákváðu bæði að halda í sitt og hafa hljótt um það.
Stóru hagsmunirnir eru ekki skattskil konu Sigmundar, alvarleiki Wintrismálsins er fyrst og fremst að sem æðsti valdamaður landsins hafði Sigmundur Davíð hagsmuni að gæta beggja vegna borðsins þegar kökunni var skipt milli landsmanna og kröfuhafa við losun hafta og hélt því leyndu fyrir þjóðinni.
![]() |
Hátt í 400 milljónir í skatta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hver getur endurreist Framsóknarflokkinn?
30.3.2016 | 18:16
Þegar velja á fólk í framlínuna er farsælt vita hvort það beri sömu gildi og þú fyrir brjósti, hvort það sé nógu frambærilegt til að halda þeim á lofti og hve vel því sé treystandi til að vinna þeim brautargengi. Hvað frambjóðandi setur í forgang, hvort hann sé frambærilegur og traustsins verður skiptir kjósendur máli.
Þegar Sigmundur fór fyrst fram í flokknum töluðu Framsóknarmenn um að nýi leiðtoginn væri kominn. Mörgum landsmanna er annt um þau gildi sem Sigmundur Davíð setur í forgang og hann var frambærilegur sem þingmaður í stjórnarandstöðu. Sem forsætisráðherra hefur honum ekki tekist að halda á lofti sínum helstu baráttumálum, og þar sem Sigmundur hefur staðið hvað sterkastur, í baráttunni við kröfuhafa, hefur hann verulega tapað trúverðugleika.
Nú mun Framsóknarfólk spyrja sig hvort Sigmundur Davíð sé enn nógu sterkur í oddinum til að vinna fleiri kosningasigra, eða hvort einhver annar væri sem leiðtogi bæði beittari og minna brothættur.
Það má vera að Sigmundur Davíð nái að spila góða nauðvörn í umræðunni um heimilin, kröfuhafana og afnám hafta, en ólíklegra er að hann geti aftur með trúverðugum hætti verið séður sem skjöldur heimilanna og sverðið í stríðinu við kröfuhafana.
Hvað hefur Sigmundur þá til að koma flokkinum aftur í sterka stöðu? Stríð um nýjan spítala á nýjum stað? Barátta við leyndarhyggju fyrri ríkisstjórnar? Það eru mál sem brenna á mörgum. Óttinn við suma útlendinga hefur líka skilað Framsóknarflokkinum atkvæði. En ekkert af þessu er í samanburði við skuldaniðurfellingu fyrir heimili landsins í stríðinu við hrægamma, eins og fyrir síðustu kosningar.
Ef engin annar stígur fram þá mun Sigmundur eflaust fara áfram með formennsku Framsóknarflokksins. Í besta falli mun hann stunda góða nauðvörn og finna sér nýtt stríð fyrir næstu kosningar. Í versta falli mun hann vera bitur og bitlítill og brotna á slæmum tíma fyrir flokkinn. Í öllu falli er harla ólíklegt að Sigmundur Davíð endurreisi Framsóknarflokkinn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)