Persónuleg ábyrgð yfirstjórnenda eflir samkeppni
7.10.2016 | 12:40
Við Píratar funduðum með forstjóra Samkeppniseftirlitsins sem sagði okkur þrjú mikilvæg atriði um skort á virkri samkeppni og leiðir til að efla hana:
1. Skortur á samkeppni hækkar verð um 20 til 50%.
Helsti sérfræðingur heims í samkeppnismálum John M. Connor sem kom á ráðstefnu í boði Samkeppniseftirlitsins í upphafi kjörtímabilsins segir 45%.
Fákeppnin á Íslandi og lítil varnaðaráhrif lágra sekta vegna samkeppnislagabrota þýðir að við eru í hærri prósentunum. Einn þriðji af verðinu sem þú borgar úti í búð er vegna skorts á samkeppni. Það er allt af tvöfallt meira en virðisaukaskatturinn.
2. Það eru ekki nógu háar sektir til að tryggja varnaðaráhrif [fælingaráhrif gegn brotum].
Samkeppniseftirlitið var líka sammála að á fákeppnismarkaði eins og Íslandi hafa sektir almennt minni varnaðaráhrif en við virka samkeppni. Við sáum það líka grímulaust um daginn að Ari Edwald forstjóri Mjólkur Samsölunnar (MS) sagði bara að ef þeir fái sekt þá borga neytendur hana bara. Ari er jafnframt formaður Atvinnuveganefndar Sjálfstæðisflokksins sem móta m.a. stefnuna um starfsumhverfi MS.
MS neitar að vera markaðsráðandi en þarna uppfyllti forstjórinn fyllilega lagaskilgreiningu þess að vera markaðsráðandi (4.gr.): Markaðsráðandi staða er þegar fyrirtæki hefur þann efnahagslega styrkleika að geta hindrað virka samkeppni á þeim markaði sem máli skiptir og það getur að verulegu leyti starfað án þess að taka tillit til keppinauta, viðskiptavina og neytenda.
Það sem Samkeppniseftirlitið segir að muni auka varnaðaráhrifin er meiri persónuleg ábyrgð yfirstjórnenda. Í Bretlandi eru lög um að yfirstjórnendur sem brjóta samkeppnislög er bannað að sitja í stjórnum fyrirtækja og stofnanna. Þetta myndi bíta hér því þetta eru fáir aðilar sem manna flestar stjórnir fyrirtækja í landinu. Að auðvelda skaðabótamál neytenda og fyrirtækja sem verða fyrir fjárhagsskaða af samkeppnisbroti myndi líka efla varnaðaráhrifin til muna.
3. Hver króna kemur 2,5 sinnum til baka.
Sektir Samkeppniseftirlitsins einar og sér borga meira en tvöfalt fyrir starfsemina. Þá er ekki talið hagkvæmin fyrir samfélagið og lægra vöruverð til neytenda vegna virkari samkeppni sem Samkeppniseftirlitið stuðlar af. Samt fær Samkeppniseftirlitið ekki nægt fjármagn til að geta stuðlað að virkri samkeppni. Þau þurfa helmingi fleira starfsfólk vegna gríðarlegrar fjölgunar fyrirtækja ef við viljum virka samkeppni. Og við viljum virka samkeppni.
Þetta er lítið mál að laga. Til þess þarf kjörna fulltrúa sem eru ekki háðir sérhagsmunaaðilum sem eru ráðandi á markaðinum á Íslandi í dag.
Þess vegna starfa ég fyrir neytendur, smærri fyrirtæki og virka samkeppni í gegnum Pírata.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
SDG í stríði við eigin stjórnarflokka um kjördag.
28.7.2016 | 13:52
Sjálfstæðisflokkurinn hefur í vikunni teflt fram forustu flokksins gegn áformum Sigmunar Davíðs að hætta við haustkosningar. Af þeim sex eru m.a. formaður þingflokksins Ragnheiður Ríkarðs og Einar K. Forseti Alþingis sem segir haustkosningar loforð:
Við höfum rætt það á okkar fundum, ég og forystumenn ríkisstjórnarinnar, að þinglok verði í haust og boðað verði til kosninga eins og lofað hefur verið.
En orð eru ódýr í stjórnmálum. Ef loforðin færa stjórnmálamanninum meiri völd en hann tapar við að svíkja þau, þá er hvati fyrir hann að lofa og svíkja.
Sigurður Ingi forsætisráðherra sem hefur valdheimildina til að rjúfa þing segir að það verði boðað til kosninga í haust nema allt verði sett "í bál og brand."
Og í dag segir Bjarni Ben formaður samstarfsflokksins að "ákveða verði kjördag sem fyrst."
Sigmundur Davíð virðist því vera rokinn aftur af stað án þess að tala við formann samstarfsflokksins, forseta Alþingis eða forsætisráðherra eigin flokks. Hann hýfir upp umræðu um haustkosningar sem forystusveit stjórnarflokkanna reynir nú að róa. Sigmundi fékk ekki forsætisráðherra Framsóknar til að styðja framhlaup sitt um að hafna haustkosningum og er því berskjaldaður og Höskuldur stillir sér upp til að máta hann.
Eitt er víst. Ef haustþing er sett þá segir stjórnarskráin að fyrst mál skuli vera fjárlög og þau þarf að klára til að ríkið geti greitt reikningana sína 1. janúar. Svo ef þing er ekki rofið fyrir upphaf haustþingsins, sem hefst í byrjun september, þá minnka líkurnar verulega á haustkosningum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bjarni Ben lofaði líka heilbrigðismálum í forgang 2013.
17.7.2016 | 10:17
Núna þegar formaður Sjálfstæðisflokksins lofar heilbrigðismálunum í forgagn "á næsta kjörtímabili" er gagnlegt að vega og meta hversu líklegt er að hann standi við þetta kosningaloforð, sem fokkurinn hans gaf líka fyrir síðustu kosningar.
Fyrir síðustu kosningar samþykkti landsfundur Sjálfstæðisflokksins "að leggja skattfé fyrst í þau verkefni sem eru brýn og áríðandi. Örugg heilbrigðisþjónusta, góð menntun og trygg löggæsla skal vera í forgrunni."
Fyrsta flokks heilbrigðiskerfi er í forgangi hjá 90% lands manna í könnunum sem Gallup hefur gert fyrir þingflokk Pírata síðustu 3 ár. Stjórnarflokkarnir hafa hins vegar sýnt það aftur og aftur að þeir forgangsraða öðru fyrst.
- Lægri veiðigjöld fyrir sjávarútvegsfyrirtækin hefur meiri forgang.
- Það hafði afnám auðlegðarskattsins líka.
- Lækkun skatta á álfyrirtækin var forgangsverkfni fjármálaráðherra 1. maí á síðasta ári.
- Svo vildi hann lækka skatta í stað þess að forgangsraða því svigrúmi sem lægra vaxtabyrði ríkissjóðs skapar til að halda í fyrsta flokks heilbrigðiskerfi.
Það er kýr skýrt að örugg heilbrigðisþjónusta er ekki í forgrunni hjá þessari ríkisstjórn eins og lofað var fyrir síðustu kosningar.
![]() |
Heilbrigðismálin í forgang |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)