Ásta Helgadóttir varaþingmaður Pírata kemur inn á í ESB umræðuna.

Ásta-Helgadóttir

Ásta Helgadóttir varaþingmaður okkar Pírata kemur inn á fyrir mig þessa viku. Hún er Pírati inn að beini, eldklár, beitt og hugrökk. Hún hefur hleypt heimdraganum, ratað víða og reynslu í stjórnmálum hefur hún m.a. sem aðstoðarmaður Evrópuþingmanns sænskra Pírata Amelíu Andersdóttur. Hún kemur því sterk inn í ESB umræðuna þessa vikuna.

Ásta mun taka við af mér á næsta ári og bjóða sig fram á lista okkar Pírata í næstu kosningum. Hér er linkur á beina útsendingu Alþingis til að fylgjast með þessum upprennandi þingmanni Pírata: http://www.althingi.is/vefur/beinutsending.html


mbl.is Evrópumálin tekin fyrir í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Sænskur ESB-sinni í staðinn fyrir þig, á alþingi?

Hvers konar bull er eiginlega í gangi, Jón Þór minn?

Þekkir fólk almennt, hvernig undiralda Sænsku ESB-stefnunnar er í raun? Vopnasölu-hagnaður og hernaðar-hertökur utan ESB-ríkja!

Það var svosem ekki á öðru von, en að svona ekta dreng eins og þér, yrði skipt út í stóru málum Pírata! En þú ert nú enn sami flotti hugsjónadrengurinn Jón Þór. Sumir selja sem betur fer ekki hugsjónir sínar fyrir sæti í sínum upprunalega flokki ruglings og blekkingaplana.

Gangi þér sem allra best í framtíðinni, utan blekkinga-flokkafársins, Jón Þór. Alvöru fólk fer ekki auðveldu leiðirnar, því réttlætisvegurinn er torfær og kostar persónulegar fórnir.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 10.3.2014 kl. 22:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband