Kosningaloforði XD: Leiðréttingin og lyklalög
11.11.2014 | 20:39
Húsnæðislán í verðbólgulandinu Íslandi hefur þýtt ævilangt skuldafangelsi fyrir fjölda landsmanna. Margir horfa fram á þau örlög í dag. Þeir sem ekki hafa tekið húsnæðislán hingað til og eru á leigumarkaði spyrja því um kosningaloforð Sjálfstæðisflokksins "Leyfum skuldsettum íbúðareigendum að hefja nýtt líf án gjaldþrots" og "Þeir sem ekki ráða við greiðslur af íbúðarhúsnæði eiga að fá tækifæri til að "skila lyklunum" í stað gjaldþrots."
Sjálfur mun ég ekki taka húsnæðislán fyrr en kosningaloforð Sjálfstæðisflokksins um lyklafrumvarp verður lög, því fyrr veit ég ekki hvaða áhættu ég er að taka.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Staðsetning flugvallar höfuðborgarinnar varðar alla landsmenn.
7.11.2014 | 12:51
Á fundi með fulltrúum borgarstjórnar fyrir rúmu ári spurði ég hvort þeir væri hlynntir því að allir landsmenn kæmu að ákvörðun um staðsetning flugvallar höfuðborgarinnar því sú ákvörðun varðar jú alla landsmenn. Landsmenn allir greiða með sköttum fyrir ýmsa þjónustu sem aðeins er byggð upp og veitt í höfuðborginni og nálægð við hana skiptir landsmenn máli. Það er stutt úr Vatnsmýrinni í mikið af þeirri þjónustu. Svarið var eitthvað á þá leið að þetta væri nú skipulags ákvörðun Reykjavíkur.
Það er rétt að lögum samkvæmt er þetta skipulagsákvörðun yfirvalda í borginni. Samkvæmt grunnstefnu Pírata eiga þó allir rétt á að koma að ákvörðunum sem þá varðar og þessi ákvörðun varðar alla landsmenn. Svo ef breyta þarf lögum um skipulagsvald Reykjarvíkurflugvallar til þess þá á sú breyting rétt á sér.
![]() |
Alþingi taki yfir Vatnsmýrina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
"Þjóðin, það er ég!" sagði Sólkonungurinn í Reykjarvíkurbréfi
1.11.2014 | 15:34

"Það versta sem þú getur sagt um leiðtoga er að daginn sem hann hvarf, hafi flokkurinn hrunið." Skrifaði faðir nútímastjórnunar, Peter Drucker, og útskýrði nánar að "Þegar það gerist, þýðir það að hinn svokallaði leiðtogi hafi mergsogið flokkinn. Það má vera að hann hafi verið árangursríkur stjórnandi en hann hafi ekki byggt upp. [...] Sólkonungurinn, Louis fjórtándi, er gefið að hafa sagt "L'état, c'est moi! (Ríkið, það er ég!). Hann dó snemma á átjándu öldinni og hin langa, ekki-svo-hæga hrun samfélagsins sem náði hámarki í Frönsku Byltingunni hófst samstundis."
Í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins þessa helgina skrifar fyrrverandi leiðtogi Sjálfstæðisflokksins að: "Þjóðin var þá mjög hætt komin [því] óaldarlýður gerði árásir á íslenska þinghúsið og fleiri opinberar byggingar [í Búsáhalda Byltingunni]." Þó var Ísland ekki að liðast í sundur og krafa þverskurðar þjóðarinnar sem stóð á Austurvelli í einum friðsælustu fjöldamótmælum sem þekkjast var ekki upplausn eða ofbeldi. Kröfurnar voru 1. Ný ríkisstjórn. 2. Nýtt fjármálaeftirlit. 3. Nýjan Seðlabankastjóra (sem þá var auðvitað Davíð sjálfur), og síðast en ekki síst 4. Nýja stjórnarskrá. Valdastöðu Davíðs stóð klárlega ógn af mótmælendum sem hættu að fjölmenna um leið og fyrstu kröfunum þremur far fullnægt. Þjóðin var því ekki "mjög hætt komin," nema Davíð hafi verið þjóðin.
Frá sjálfstæði Íslands hefur Sjálfstæðisflokkurinn haft í kringum 40% fylgi. Stóra undantekningin var dýfan 1987 með Þorstein Pálsson í brúnni og svo hrun flokksins nýverið. Í ljósi þeirra staðreynda og annars sem nefnt er í þessum pistli getur faðir nútímastjórnunar mögulega varpað ljósi á hluta af ástæðunni fyrir hruni Sjálfstæðisflokksins, en hann benti á að "Ef leiðtogar geta ekki haldið sinni persónu aðgreindri frá leiðtogahlutverkinu þá gera þeir hluti fyrir eigin persónulegu upphafningu [...] Þeir verða eigingjarnir og hégómafullir. Og umfram allt verða þeir öfundsjúkir. Einn af mestu styrkleikum Churchill og helsti veikleiki FDR [fyrrum forseti BNA] var að, fram á það síðasta, þegar Churchill var kominn á áttræðisaldur, studdi hann unga stjórnmálamenn. Það er einkenni sérstaklega árangursríkra leiðtoga, sem hræðast ekki styrkleiki annarra. Síðustu árin, gróf FDR undan öllum sem sýndu vott af sjálfsstæði."
Út úr Reykjavíkurbréfi Davíðs er ekki erfitt að lesa orð annars Sólkonungs: "Þjóðin, það er ég!" Jafnframt vita allir sem vilja að Davíð Oddsson er líkari FDR en Churchill því hann þolir öðrum illa að sýna sjálfstæði eða varpa á sig skugga, sér í lagi stjórnmálamönnum í Sjálfstæðisflokkinum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)