Bús í búðir er það sem koma skal.
12.7.2014 | 21:32
Aldrei hef ég komið frá spjalli við Vilhjálm Árnason efins um hans einlægni. Hann er skýr í orði og skilur stjórnmálanlegan veruleika. Lesandi þessa frétt er ljóst að hann hefur undirbúið rök og réttlætingar fyrir málinu vel. Með þessu útspili og almennt frjálslyndri afstöðu hans og stöðu sem fyrrum lögreglumaður mun hann ná til stórs hóps ungra kjósenda, ef flokkurinn stendur ekki í vegi fyrir honum. Þess vegna trúi ég að honum takist að fá þetta frumvarp samþykkt
![]() |
Sjálfsagður hlutur að leyfa þetta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fíkniefnalöggjöf sem rukkar samfélagið og refsar sjúklingum.
1.7.2014 | 15:17
Meðalið sem Alþingi skrifaði upp á til að fækka fíkniefnaneytendum hefur í besta falli sannað að það tekur meira en fjörutíu ára til að virka. Samfélagið og veikustu borgarar þess hafa hins vegar þurft að þola aukaverkanir refsistefnunnar allan þennan tíma.
Akaverkanirnar eru meðal annars:
1. Skattfrjáls undirheima markaður,
2. með öflugara dreyfikerfi en áfengisverslanir,
3. stjórnað af hættulegum glæpamönnum,
4. sem selja fíkniefni útþynnt af eitri á uppsprengdu verði,
5. til barna og unglinga,
6. áður en þeir ýta sjúkustu neytendunum út í vændi og glæpi,
7. samhliða því að rukka fjölskyldur þeirra með hnefanum
8. og valda háum kostnaði vegna löggæslu, trygginga og heilsugæslu,
9. greiddur úr vasa almennings,
10. í stað þess að fara í forvarnir og meðferðarúrræði sem hafa sannanlega fækkað fíkniefnaneytendum.
Það er kominn tími til að við þingmenn, eins og góðir læknar, skoðum aukaverkanir þess meðals sem forverar okkar skrifuðu upp á og afnemium löggjöf sem gerir fólk sem á við fíkn að stríða að glæpamönnum.
Það er trú mín að eiturlyf hafi eyðilagt líf margra, en röng stefna stjórnvalda hefur eyðilagt líf miklu fleiri. Við þurfum að horfa á stefnuna og spyrja okkur einlæglega og heiðarlega; virkar hún? Ef hún virkar ekki, höfum við hugrekki til að breyta henni? - Kofi Annan, World Economic Forum, janúar 2014.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Tesla Motors gefur öll einkaleyfin sín.
12.6.2014 | 22:37

Einkaleifin sem voru gefin eru einkaleifi á þetta:
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)