Að skapa lærdómsmenningu skref 1: "Hvað vil ég?"

- Að skapa frjóan jarðveg og skjóta rótum -

handss"Raunverulegur lærdómur á sér stað þegar fólk reynir að skapa það sem það vill." Sem börn lærðum við að ganga til að skapa okkur nýja möguleika og sem tegund lærðum við að byggja þak yfir höfuðið til að skapa okkur betri aðstæður. Lærdómur er í raun: "að auka hæfileika okkar til að skapa möguleika og aðstæður."

Fyrsta skrefið er því að komast að því hvaða möguleika og aðstæður við virkilega viljum skapa, og það er ótrúlega auðvelt:

Sjáðu fyrir þér í huganum einhverja mynd af möguleikum og aðstæðum sem þig langar til geta skapað. Það er hægt að byrja hvar sem er. Ímyndaðu þér að þetta er nú þegar raunveruleikinn. Upplifðu það í nokkrar sekúndur og spurðu svo: "Hvað geri ég núna? Hvaða aðstæður eða möguleika langar mig að skapa?" Gerðu þetta þar til þér dettur ekkert annað í hug og skoðaðu þá hvort einhver af myndunum sem komu upp í hugann lætur þér líða og hugsa með létti: "ahhh...ég er loksins komin/n heim!"

Ef ekki, haltu þá áfram að leita að aðstæðum sem þú vilt skapa. En ef svo, byrjaðu að lifa á þessum stað í huganum núna. Sjáðu fyrir þér í nokkrar sekúndur hvernig allt er og finndu hvernig þér líður þar. Ef þú heldur áfram að gera þetta muntu hægt og rólega sjá og fara að trúa hvernig þú getur skapað möguleika til að skapa þessar aðstæður.

Þegar hugur þinn er fullur af djúpri löngun til að skapa þér aðstæður þar sem þér finnst þú eiga heima þá er hann mjög frjór jarðvegur til að læra að skapa þær, og í þessum jarðvegi spírar trúin að þú getir það og skýtur djúpum rótum. Þegar þú ferð að lifa í huganum á hverjum degi þær aðstæður sem þú vilt skapa er það bara tímaspursmál hvenær þú horfir í kringum þig í raunveruleikanum og segir brosandi: "Mikið er gott að vera kominn heim."

 ____________________________________________________________________________

Ef þig langar að rækta þig og fólkið í kringum þig sendu þeim þá linkinn á þetta blog og geymdu hann í favorits til að lesa í gegnum blogið eins oft og þú vilt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Sammála þér Jón þór... Allaveganna reyni ég  að sjá fyrir mér farveginn sem ég  vill fara í því þá eru meiri líkur að komast þangað eða lenda þeim aðstæðum. Það hefur gefið mér góða raun að minsta kosti.

Brynjar Jóhannsson, 27.8.2007 kl. 17:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband