Tími frá útgáfu að umræðu um skýrslur á þingi.
11.4.2014 | 12:58
Um eftirlitsstörf Alþingis segir í 49. gr. þingskaparlaga: "Alþingi, þingnefndir og einstakir alþingismenn hafa eftirlit með störfum framkvæmdarvaldsins." Ákvæðinu er ætlað að uppfylla 14. gr. stjórnarskrárinnar. Til að sinna þessu stjórnarskrárbundna eftirlitshlutverki hafa þingmenn og þingnefndir m.a. heimild í þingsköpum til að kalla eftir skyÌrslum og fá umræðu um þær í þinginu. Til að eftirlitshlutverkinu sé sinnt með sóma þurfa þingmenn að geta kynnt sér efni skyÌrslu vel fyrir umræðu í þingsal. Það eru því óvönduð þingsköp sem heimila þingforseta að setja langar og ítarlegar rannsóknarskyÌrslur á dagskrá degi eftir birtingu. Flutningsmenn vilja með þessu frumvarpi laga þá brotalöm og bæta þannig störf Alþingis.
Á mannamáli:
Alþingi kallar eftir skýrslu til að hafa eftirlit með stjórnvöldum sem hafa húsbóndavald yfir þingforseta sem setur skýrsluna sem fyrst undir stól. Stay classy Alþingi :)
En á þessu er einföld lausn og hafa þingmenn allra minnihlutaflokkanna á þingi lagt fram lagafrumvarp um að "ekki skal taka lokaskyÌrslu rannsóknarnefndar til umræðu í þinginu fyrr en í fyrsta lagi þremur nóttum eftir birtingu hennar."

Eygló Harðar lýsir sig vanhæfa í máli HH.
10.4.2014 | 17:03
Hagsmunasamtök Heimilanna (HH) kærðu fyrir fimm mánuðum útfærslu verðtryggingar neytendalána hjá Íbúðalánasjóði (ÍLS). Málinu var úthlutað dómara fyrir þremur mánuðum og ÍLS biður þá um að málinu sé vísað frá dómi. Þegar taka átti fyrir frávísunarkröfuna þá lýsti dómari sig vanhæfan sökum þess að hann væri með verðtryggt lán hjá ÍLS. HH vísa í sambærilegt mál hjá EFTA dómstólinum þar sem Páll Hreinsson, sem er dómari í tveimur málum er bæði varða lögmæti verðtryggingar, væri ekki vanhæfur þrátt fyrir að hann hafi sjálfur tekið vísitölubundin lán með veði í húseign sinni.
Klukkan tifar og fimm mánuðir eru fram í september, en þá hverfur skjólið sem Hanna Birna skapaði um jólin; skjól fyrir því að heimili landsmanna séu seld á nauðungarsölu. Hanna Birna hefur líka tryggt flýtimeðferðina á dómsmálum er varða verð- og gengistryggingu. En nú lýsir Eygló húsnæðismálaráðherra sig vanhæfa til að taka þátt í að flýta þessum málum eins og hægt er. Hún hefur sem húsnæðismálaráðherra heimild til að fá yfirstjórn ÍLS til að falla frá frávísuninni á máli HH. En hún lýsir sig vanhæfa til þess af því að hún er félagi í HH og hafi stutt félagið með fjárframlögum.
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins segir: "Unnið verður að því að dómsmál og önnur ágreiningsmál, sem varða skuldir einstaklinga og fyrirtækja, fái eins hraða meðferð og mögulegt er. Óvissu um stöðu lántakenda gagnvart lánastofnunum verður að linna." En Eygló segist vera vanhæf til að vinna að því að dómsmál sem varða skuldi einstaklinga fái eins hraða meðferð og mögulegt er. Ef óvissan um stöðu lántakenda gagnvart ÍLS verður enn til staðar þegar nauðungarsölur heimilanna hefjast í haust þá vitum við hver ber hluta af þeirri ábyrgð.

Facebook póstur frá formanni Hagsmunasamtaka Heimilanna:

Stjórnmál og samfélag | Breytt 14.4.2014 kl. 09:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Verkfallsrétturinn er stjórnarskrárvarinn.
4.4.2014 | 14:36
Verkfallsrétturinn er stjórnarskrárvarin og aðeins má á hann ganga með lögum í þágu almannaheilla og þjóðaröryggis (samkvæmt Mannréttindasáttmála Evópu) eða vegna ríkra almannahagsmuna eða efnahagslegrar vá (samkvæmt Hæstarétti Íslands).
Hvernig ber löggjafanum að túlka þessi orð:
1. Ríkir almannahagsmunir?
2. Efnahagsleg vá?
Ræða fyrir nefndarfund:
Stjórnmál og samfélag | Breytt 14.4.2014 kl. 09:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)