COVID pakki ferðamálaráðherra brýtur eignarrétt og stjórnarskrá.
29.4.2020 | 16:50
Ráðherra ferðamála hefur lagt fram frumvarp um Pakkaferðir, sem leggur til að svipta neytendur lögbundnum réttindum, afturvirkt. - Það er bara viðurkennt í frumvarpinu sjálfu (3.2. í greinargerð).
Frumvarp sem leggur til að brjóta stjórnarskránna. - Já það kom skýrt fram hjá tveimur stjórnarskrár sérfræðingum sem við óskuðum eftir umsögn frá.
Frumvarp sem leggur til að taka af fólki eignarréttindi, án bóta. - Ótrúlegt en þetta kom skýrt fram hjá eignarréttar sérfræðingi fyrir þingnefndinni og báðum stjórnarskrár sérfræðingunum. Neytendasamtökin segja að fólk hafi þegar ákveðið að fara í skaðabótamál við ríkið.
Ég mun áfram standa vörð um eignarréttinn við vinnslu málsins. Það væri gott að Sjálfstæðismenn minni ferðamálaráðherra og þingmenn flokksins á að brot á eignarrétti stjórnarskrárinnar verður ekki liðið.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:17 | Facebook
Athugasemdir
Takk Jón Þór fyrir að standa upp fyrir okkur neytendum.
Málið varðar það sem kallast og fellur undir "tilfærslu viðmiða" (https://stundin.is/grein/6005/) sem í dag er frekar regla en undantekning hjá núverandi ríkisstjórn. Þetta er best að segja "vafningslaust".
Hákon Jóhannesson (IP-tala skráð) 3.5.2020 kl. 01:14
"tveimur stjórnarskrár sérfræðingum"
Bættu við þeim þriðja. :)
Auk þessi gæti sérfræðingur í Evrópurétti (eða bara einhver sem kann Evrópurétt) auðveldlega bent á að rétturinn til endurgreiðslu leiðir af 12. gr. tilskipunar 2015/2302 um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun sem er innleidd í 15. og 16. gr laga um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun, en hvergi í tilskipuninni er gerð nein undantekning frá endurkröfurétti eða veitt heimild til að greiða með inneignarnótu í stað peninga. Þar af leiðandi myndi gildistaka umrædds frumvarps brjóta gegn EES-samningnum.
Þá gæti einhver sem þekkir til laga um gjaldmiðil Íslands nr. 22/1968 bent á að sá gjaldmiðill er króna og Seðlabanki Íslands hefur einkarétt á útgáfu hennar. Ferðakrifstofur hafa enga heimild til peningaútgáfu og inneignarnótur eru ekki peningar.
Enn fremur gæti sérfræðingur í samningarétti eflaust bent á að þeir skilmálar sem neytandinn skrifaði undir í samningi um pakkaferð eru þeir sem gilda um viðskiptin. Þeir breytast ekki þó að síðar séu gerðar breytingar á lögum. Ríkisvaldið getur ekki sent starfsmenn heim til neytenda með tipp-ex til að afmá skilmála í gildandi samningum þeirra.
Guðmundur Ásgeirsson, 17.5.2020 kl. 15:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning