Lækkun veiðigjalds eða ekkert veiðigjald verður lagt á í ár?
20.6.2013 | 11:29
Er hægt að leggja á veiðigjald (eða til bráðabirgða jafn há gjöld) á þessu ári þó að frumvarp um breytingar á lögum um Veiðigjald, sem hafa að markmiði"Að afnema ákvæði í lögum um sérstakt veiðigjald," verði ekki samþykkt nú á sumarþingi?
Gestir Atvinnuveganefndar, sem fjallar um málið, segja 'já.' Bæði þeir sem eru fylgjandi frumvarpinu og þeir sem eru á móti.
Tillögur þeirra eru hér segir:
- Að Alþingi setji lög sem heimilar stjórnsýslunni að fá þær upplýsingar frá sjávarútvegsfyrirtækjum sem þarf til að reikna veiðigjöldin.
- Patent lausn væri að fara í breytingar á tekjuskatti.
- Best í dag annað hvort að finna leiðir til að fá upplýsingarnar sem þarf til að eða finna krónutölu á kíló. Íslendingar borga í dag krónutölu í Barentshafi af (Rússum?).
- Nota greiðslumiðlunarkerfið sem er í gangi í 28 ár. Finna fasta tölu fyrir tegundirnar. Þá væri á ábyrgð þeirra sem versla með fisk að borga gjaldið. Þetta væri einfalt.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:03 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.