COVID pakki ferðamálaráðherra brýtur eignarrétt og stjórnarskrá.
29.4.2020 | 16:50
Ráðherra ferðamála hefur lagt fram frumvarp um Pakkaferðir, sem leggur til að svipta neytendur lögbundnum réttindum, afturvirkt. - Það er bara viðurkennt í frumvarpinu sjálfu (3.2. í greinargerð).
Frumvarp sem leggur til að brjóta stjórnarskránna. - Já það kom skýrt fram hjá tveimur stjórnarskrár sérfræðingum sem við óskuðum eftir umsögn frá.
Frumvarp sem leggur til að taka af fólki eignarréttindi, án bóta. - Ótrúlegt en þetta kom skýrt fram hjá eignarréttar sérfræðingi fyrir þingnefndinni og báðum stjórnarskrár sérfræðingunum. Neytendasamtökin segja að fólk hafi þegar ákveðið að fara í skaðabótamál við ríkið.
Ég mun áfram standa vörð um eignarréttinn við vinnslu málsins. Það væri gott að Sjálfstæðismenn minni ferðamálaráðherra og þingmenn flokksins á að brot á eignarrétti stjórnarskrárinnar verður ekki liðið.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hjúkrunarfólk fer eftir faraldurinn, ef ekki er samið við þau.
1.4.2020 | 21:46
Við getum treyst hjúkrunarfólki til að standa með okkur í gegnum faraldurinn þó starfsaðstæður eru svo slæmar að margir menntaðir hjúkrunarfræðingar starfa ekki sem slíkir og ríkið hefur ekki samið við þá í 5 ár frá því að stjórnvöld fengu samþykkt lög á verkföll hjúkrunarfólks 2015. Þá var bent á að þetta myndi valda meiri skorti hjúkrunarfólks og 200 sögðu upp störfum í kjölfarið.
Hjúkrunarfólk munu áfram setja sig í hættu til að hjúkra okkur og þau munu smitast af Covid 19 og þegar faraldurinn er búin hefur formaður Félags Íslenskra Hjúkrunarfræðinga bent á hættuna að sum þeirra munu segja upp ef stjórnvöld sýna ekki sóma og semja við þau núna.
Hjúkrunarfólk á betra skilið - semjið við þau strax.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.4.2020 kl. 08:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Hjúkrunarfræðingar eiga betra skilið - semjið við þá.
20.3.2020 | 17:37
Á tíma sem heilbrigðisstarfsfólkið okkar er lang mikilvægasta starfsfólk landsins segir Félag Íslenskra Hjúkrunarfræðinga okkur frá enn einum árangurslausum samingafundi við samninganefnd Bjarna Ben.
Ríkisstjórn Bjarna Ben og Sigmundar Davíðs gerði samninga við lækna sem kostaði 4 milljarða á ári, en settu lögbann á verkfall hjúkrunarfræðinga sem hefði kostað það sama fyrir tvöfallt fleira starfsfólk.
Það er neyðarástand og Kóróna faraldurinn mun kosta okkur yfir 100 milljarða samkvæmt Bjarna Ben fjármálaráðherra, en hann veit ekki hvað það kostar að klára samninga við hjúkrunarstarfsfólkið sem dag eftur dag fórnar sér fyrir okkur í framlínuni við hjúkra okkar veikasta fólki og minnka mannlegan og fjárhagslegan harmleik faraldursins.
Hjúkrunarfræðingar eiga betra skilið - semjið við þá strax.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)