NAFLASTRENGURINN Á GYLFA.

gylfi.jpg

Í hinu pólitíska umhverfi Bandaríkjanna er vanalegt að fyrrum varðhundar auðugra sérhagsmunaaðila á borð við banka og fjárfesta verði ráðherrar. Tveir síðustu fjármálaráðherrar Bandaríkjanna komu báðir úr risa bönkum og samanlagt hafa þeir styrkt risa bankana um yfir billjarð dollara (trillion dollars“ á ensku). (Sjá hér og hér)

Hvert liggur naflastrengurinn?

Á Íslandi í fyrra varð fyrrum varðhundur auðugra sérhagsmunaaðila að viðskiptaráðherra. Gylfi Magnússon var í stjórn Samtaka Fjárfesta á árunum 2001 - 2007, rétt áður en hann settist í stól viðskiptaráðherra. Ætli að hann hafi klippt á naflastrenginn við sérhagsmuni fjárfesta þegar hann tók að sér að verja hagsmuni almennings?

Að þjóna tveimur herrum.

Á heimasíðu Samtaka Fjárfesta segir: „[...] hefur félagið þann tilgang að gæta hagsmuna fjárfesta gagnvart stjórnvöldum, stjórnmálamönnum, útgefendum hlutabréfa og annarra verðbréfa og fjölmiðlum og öðrum þeim sem áhrif geta haft á hag fjárfesta.“ Gylfi var í stjórn þessa félags á sama tíma og hann átti að gæta hagsmuna almennings sem formaður stjórnar Samkeppniseftirlitsins 2005 - 2009. Hagsmunir fjárfesta og markmið Samkeppniseftirlitsins við að verja almannahag fara ekki alltaf saman.

Nú í dag þegar Gylfi á að vera að gæta hagsmuna almennings er manni spurn hvað Gylfi gerir þegar hagsmunir almennings og hagsmunir fjárfesta fara ekki saman?

 


mbl.is Eftirstöðvar sexfaldast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Gætir þú nefnt fyrir mig einhvern íslensskan Hagfræðing á hans kvaleberi sem er ekki pólitískt tengdur eða hagsmunatengdur ?

Jón Daníelsson = Var hagfræðiráðgjafi framsóknar.

villhjálmur Bjarnason= ef ég man rétt þá er han formaður fjárfesta

Gunnar Tómasson= Ég þori ekki að fullyrða en ég veit ekki betur en hann er mjög tengdur inn í framsókn.

Þorvaldur Gylfason= Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn.

 
Ég hef aldrei skilið það sem svo að starf Viðskiptaráðherra sé að gæta hagsmuna almennings- heldur að gæta hagsmuna - íslenska hagkerfisins í heild sinni og innan þess eru hvorutveggja- almenningur og lánveitendur

Í það minnsta verður að athuga þau rök hans Gylfa til hlítar- hvað þessi niðurstaða hæstarétts þýðir. Í það minnsta þykir mér með öllu skiljanlegt að hann taki þá ekki einarða stöðu með þeim sem þáðu þessi lán- ef það gæti þýtt annað bankahrun. Þá væri hann fyrst að bregðast starfi sínu sem viðskiptaráðherra enda hans hlutverk að gæta hagkerfisins í heild sinni.

Vissulega verður að finna lausn á þessu máli og helst þannig að hún sé almenningi í vil en það væri skelfilegt ef það þýddi annað bankahrun. 

Brynjar Jóhannsson, 25.6.2010 kl. 10:53

2 Smámynd: Jón Þór Ólafsson

Gylfi sat í stjórn Samtaka Fjárfesta á sama tíma og hann var sitjandi stjórnar formaður Samkeppniseftirlitsins.

Ég veit ekki með þig en ég á erfitt með að treytsa slíkum manni til að gæta hagsmuna minna sem borgara umfram hagsmuni fjárfesta.

Nú þegar hann í dag leggur sig mikið í frammi að verja hagsmunir fjárfesta og ber fyrir sig að hann sé í raun að því til að verja hag almennings, þá hringja viðvörunarbjöllur í hausnum á mér.

Ætli ég sé ekki bara of tortryggin. Við ættum að treysta ráðamönnum betur X)

Jón Þór Ólafsson, 25.6.2010 kl. 14:20

3 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Það sem heggur mig mest er að þessi ólöglegu lán voru fyrst veitt fyrir meira en 10 árum síðan. Hvað var eiginlega í gangi ? Hvar var fjármálaeftirlitið og lögmenninir á þeim tíma ?

Auðvitað á fólk að fá sanngjarna meðferð en það má þó ekki vera með þeim hætti að hagkerfið hrynji aftur. Í raun má það ekki gerast.

Fyrir mér er spurningin þessi ?

Er Gylfi að reyna að vernda hagkerfið og þannig hag íslendinga eða er hann að ganga erindi hagsmunaaðila ? 

Brynjar Jóhannsson, 25.6.2010 kl. 17:22

4 Smámynd: Jón Þór Ólafsson

Það er akkúrat spurningin.

Og ég á erfitt með að treysta manni sem sat í stjórn Samtaka Fjárfesta á sama tíma og hann var sitjandi stjórnar formaður Samkeppniseftirlitsins. Ég á erfitt með að treysta að slíkur maður sé ekki enn þá varðhundur sérhagsmunaaðila.

Jón Þór Ólafsson, 25.6.2010 kl. 19:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband